Grobb dagsins! Kári Steinn frændi Ísl. met í 21km 1.12.01 JÚHÚ!!!
Fyrstur í mark í Brúarhlaupinu á Selfossi í dag. Til hamingju!
Ættleiddi mávarunga (hef ekki verið og er ekki aðdáandi!)
í vinnunni í gær og fyrradag, hann heitir Jónas, bróðir hans
birtist í gær og heitir hann Hafliði. Þeir eru hinir ægilegustu
og borða allt sem ég hendi út um gluggann, t.d. apríkósur, epli, gulrætur,
speltbollur, birkirúnstykki, þurrkaða banana...voru nú ekkert ýkja hrifnir
af þeim. Sei, sei, ég hef ekki fengið fjöður í hattinn fyrir vikið nema síður sé!
Mér finnst nú að allir eigi að fá sitt tækifæri, þó mávur sé! ha!
Ef það er ekki veður til að vera úti í dag, þá veit ég ekki hvað!
Farin út!
Johnsson! :)
Tuesday, September 06, 2005
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Bið að heilsa Hafliða og Jónasi!
Moohaahahah
Post a Comment