Guðrún og Sean!!! CONGRATULATIONS!!! AND I'M NOT THERE!!! :( tár, tár og flóð!!!
Bjössi hringdi í mig rétt fyrir ellefu og allt gekk vel, 16 merkur og 54 cm. takk fyrir! Hún átti rétt fyrir tíu í morgun og eins og fyrr sagði gekk allt vel, eins og í sögu sagði Bjössi :) Jeiiiiiiiiiiiiiiiiiiii...... það þarf þá ekki að setja hana af stað á mánudag...hmmm I wonder what started it....Johnsson!
Ég, stolta ömmusystirin :) já, já :) var að koma heim eftir ferð tvö í dag úr verslunarleiðangri. Komin í IKEA kl. 10 í morgun, fann mottu en fattaði bara svona alveg óvart að ég var á Corvettunni...motta sem er 170x240 er ekki að passa inn í hana...sooooooooooo, didn't get that, en keypti handklæði og eitthvað allt annað en ég ætlaði að kaupa. Þaðan arkaði ég í Smáralindina, fór í Zöru og held ég allar hinar líka, fékk nú reyndar pínu eitthvað í Zöru...tekur ekki að nefna það :)
Þaðan í Hagkaup, keypti heil ósköp af ostum, ítalskur í kvöld, namm!!!
Hey, keypti líka nammi afþví að það er ekkert til hér...einmitt!!!
Fór svo í ríkið og tók, borgaði nú fyrir þær, tók rauðvín og var orðin frekar
svöng þegar hér var komið við sögu og ákv. að fara heim í safa áður en lengra yrði haldið. Fékk mér safa, settist aðeins niður og út aftur.
Nú byrjaði ég á bílasölu Íslands og tékkaði á þessum svarta benza sem hann er með þar, skítugur, sætur, svartur eða dökkgrár, 220, sjálfsk., topplúga, keyrður 250 tæp., árg.'94 keyrði hann í sundin blá þar sem var tékkað á honum enn frekar og ég fór svo til gæjans og sagði
við hann að ég skildi spá í þetta ef ég fengi hann á 500 í mesta lagi, það er sett á hann 690. Hann var jákv. og hringir í mig á mánudag.
Haldiði að mín hafi ekki arkað í kringluna þaðan og goodness me! ég hef ekki kíkt svona í búðir hér í mörg ár. Fullt af nýjum töff búðum. Útsala í mörgum eða kringlukast heitir það víst og dúdúdú! krash bang! hvítir johnsson á 5900! í stað 12900. alveg ánægð núna sko :)
Á leið heim úr vinnu í gær, á Suðurgötu á leið suður í ytri í hringtorgi, fer af stað og hægt...BÚMM! við erum að tala um að ég var á Corvettunni sem átti að leggja inn í skúrinn um helgina! Ungur strákur keyrði aftan á mig alveg í mínus! greyið.
Hann var á Toyotu og ég er ekki að ná því ennþá hvað sá rosalega á henni! húddið upp, brettið í johnsson beiglu og rétt flagnað lakkið af vettunni. Samt er Corvettan úr plasti. Hvorugt okkar með tj.skýrslu og viti menn, löggan á Hringbr. á leið austur stuck í rush hour og þeir voru þokkalega að fylgjast með, ég hljóp yfir og þeir gáfu mér eitt stk. með þessu líka brosi! Þetta hefði getað farið verr.
"ég er búinn að týna ökusk. mínu" poor boy.
Var að enda við að borða smá ferskan ananas og vatnið gott, ætla svo að hjóla eitthvað, nenni ekki að hlaupa núna.
ÖMMUSYSTIR!!!!!! :)
MISS YOU NED!
Saturday, October 15, 2005
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Til hamingju ömmu systir Johnsson, alltaf að verða ríkari á barnabörnunum.
Kveðja Guðrún El
Post a Comment