Það er að birta núna, vaknaði 05:30 ákv. að lesa, sofnaði aftur og dreymdi eitthvað weird. Var í einhverri verslun þar sem Vegamót er á móti Ingimundi löggu.
Skildi nýja hjólið mitt eftir fyrir utan með veskinu og öllu því sem ég hafði keypt sem var nú ekkert ýkja merkilegt því ég man í draumnum að ég var að reyna að muna hvað þetta hafði verið...fór inn aftur og læsti ekki hjólinu, var meðvituð um það og það var farið þegar út kom. Ég var einhverra hluta með gemsann á mér en var eitthvað voooooooooða sorry yfir þessu.
Guðrún og Sean bent á frá lækninum að fara heim og "do your homework!" hehehe...Sean frekar hneykslaður á þessu, það fer nú reyndar tvennum sögum af virkni þessa.
Vona að þetta fari nú að ganga.
Ég er að hugsa um að fara í gamlan verslunarfíling í dag, mottu í stofuna, endurnýja...alveg tími á það, handklæði og svei mér ef ég ætla ekki að arka í kringlu eða tvær til að tékka á sparijohnsson. Ég geri ekki mikið af því í Ameríkunni...sennilega búðarvalið :) gæti verið!
Einnig stefnt á að fara með Garminn minn í hlaup þegar líður á daginn.
Hugmynd um að prufa eitthvað jömmí úr nýju ítölsku GORGEOUS bókinni minni!
Ciao for now
Saturday, October 15, 2005
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Alltaf jafn dugleg!
kveðja úr holtinu
Guðrún Elísabet
Post a Comment