Saturday, November 05, 2005

Kosningadagur tvö...

...og tími á blogg!

Búin að vera þokkalega upptekin í dag við ýmislegt,
labbaði t.d. á Sögu og kaus, labbaði þaðan út á Nes til
pabba og Margrétar, ætlaði þaðan að versla og þaðan heim.
En þau plön breyttust þar sem pabba langaði svo mikið að
hitta Gísla Martein á kosningaskrifstofunni hans. Svo ég
fékk bílinn þeirra, verslaði, heim, safi, skipti um föt og
sótti karlinn. Við fengum þetta fína stæði nánast beint fyrir
framan, hjólast.stæði og örkuðum inn.
Ég skráði okkur í gestabókina og er ekki Gísli Marteinn bara right
there og gekk strax til pabba og heilsaði. Pabbi sagði honum að
hann þekkti pabba hans og ég sagðist vonast til að geta hitt hann
uppá skrifstofu þegar hann væri orðinn stjóri. Svo fór hann aftur
fyrir, þannig að við rétt náðum á hann. Ég meira að segja náði að
taka mynd af þeim félögum pabba og honum :) hehehe...
Svo settumst við niður, ég sótti vöfflu með rjóma og kaffi fyrir pabba
og svo spáðum við í fólkið. Heyrðu já!!! pabbi algjör..."Grannur er hann
og fínn í vexti" :) snilld! hann pabbi er langflottastur! Gísli var reyndar
mjög flottur og átti hrós pabba alveg skilið.
Stuttu seinna kom inn á hækjum Valtýr Björn og settist við hliðina á okkur.
Þarna var líka Selma Björnsd. þannig að pabbi hafði fullt að segja Margréti.
Ég, er ríka stelpan í dag :)


Talandi um pabba, þá um daginn þegar ég fór til þeirra, dinglaði
bjöllunni sem var enn biluð, hringdi og ég sagðist vera niðri hvort
hann vildi ekki hleypa mér inn, jú, jú mikil ósköp. Ég beið og beið
og beið...hringdi aftur, nei, nei, hvað?...myndir þú ekki vilja vera
svo vænn að senda Margréti niður að opna takk...sæll! ég var farin að
halda að hann væri sjálfur á leiðinni niður að opna og var örugglega
búin að bíða í 10 mínútur...johnsson.
Þau keyrðu mig svo heim áðan og Margrét var að vandræðast yfir því hvenær
þú elsku Sólveig :) kemur heim, að morgni 8 eða ekki...já, já...:) say no more!
Þín er sárt saknað og ykkar allra. Ég get BARA gert mér í hugarlund hvað
þú átt eftir að sakna þeirra er heim kemur.

Matarboð í kvöld og kosningaúrslit!!! maður lifandi hvað ég er orðin spennt!

Set mynd inn af pabba og Gísla á morgun eða hinn...pabbi og borgarstjóri eða
pabbi og Gísli...CROSSING FINGERS HERE!!!

No comments: