Sunday, November 27, 2005

Sunnudagur og...

Elísabet rules!!! Ok. G.Elísabet :)
Takk fyrir commentin bæði, love you! :)

Thanksgiving dinner í gærkvöldi og johnsson góður!
Keypti kalkúnabringu á kr.2.649 (rétt rúmt kíló)
og heilan frosinn kalkún (4.kg.) á kr.2.411!!!
Já mikil eru þau forréttindi að búa á Íslandi og
geta keypt kalkún...en ekki í Ameríku...og á svona
líka roooooooooooooosalega góðu verði.
Non the less þá gerði ég allan pakkann, stuffing,
cranberry sauce, fantastic gravy, sweet potato pie,
spínat salad með jarðaberjum og valhnetum...GOODNESS!!!
Bringuna setti ég í...koníak, sinnep, hunang, jurtakrydd...mmmm...

En eins og þú minnist á í commentinu Elísabet, þá á ég
og vonandi alltaf þessa meiriháttar minningu í þessari
líka veislu í "Ameríku" þar sem var svo gjörsamlega stjanað
við okkur og fengum að fara á slóðir sem enginn annar!
Mjög gaman!

Í gær setti ég upp eftir að kíkja á Pabba og Margréti
seríur á svalirnar, bætti aðeins við og rétt náði að
klára áður en myrkur showed up.
FYRST Í GÖTUNNI!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! I'll have you know!
Svo bættist einn við með eina slöngu og svo þessi í endanum
með alla snjókarlana, var að setja upp í dag.
Í dag setti ég svo í trén fyrir utan og í kringum hurðina.
Ég þurfti hins vegar að skipta hurðars. út og bæta við og
henda á trén...blómaval, rúmf.lager, blómaval, heim í trén,
johnsson...meiri seríur og dada! tókst! bara flott!!!
Næst...jafnvel núna...að setja í háu Aspirnar...hmmmm :)

Þakklæti mitt núna...rauk út að taka myndir af sólsetrinu
og lagði uppá gangstétt fyrir aftan/framan flugbrautina
og þar kom kona aftan að mér í hjólastól
og ég fór í panikk og baðst auðmjúklegrar afsökunar en hún var
bara að njóta fegurðarinnar eins og ég og langaði að tala við mig.
Hún átti vart orð yfir því hvað mörgæsamyndin í Háskólabíó væri
meiriháttar!!! (heimildarm.)verð að sjá hana. Hún var nýkomin af henni.
Þessi kona býr á Lynghaga og við vorum báðar sammála um hversu
mikil forréttindi það eru að búa svona náægt sjónum
og að geta notið svona fegurðar.
Ég tók hérumbil tvær filmur! hlakka til að sjá!!!!!!

En núna líður að spenning fyrir Ameríkuferð okkar Önnu Helga!!!
Við förum saman, já, við Anna Helga förum saman til Baltimore
á föstudaginn! núna á föstudaginn...eftir...einn, tvo, þrjá,
fjóra daga!!! Goodness! pabbi og Margrét ætla að keyra okkur
og ég hlakka mikið til að sýna henni allt "mitt" þar og þegar
er undirbúningur hafinn hér og þar!!! Jeiiiiiiiiii......... :)

Orðin svöng!!!

Skil ykkur sem lesið, eftir með þessa spurningu...
"Fyrir hvað ert ÞÚ þakklát(ur)???

1 comment:

gudrunhulda said...

Svona til að svara þá er ég lang þakklátust fyrir að eiga svona góða að og alveg yndislega fjölskyldu... love you gudda budd