Saturday, December 10, 2005

...dagbókarfærsla

...þriðjudagurinn var frekar magnaður to say the least!
Eftir rólegan og notalegan morgun fór Ned með okkur
í heimsókn til foreldra sinna Þar sem við stoppuðum
stutt, gaman að kíkja á þau. Þaðan keyrði hann okkur í "Michaels" og fór
á meðan heim að sækja mynd sem við gleymdum sem hann ætlaði að fara með
til Cassidy's ad Barböru beiðni. Þessa mynd málaði Eva Cassidy fyrir hann
og er MJÖG flott eins og allar hennar myndir.
Hún er í bókinni og víðar en þau hafa aldrei séð orginalinn.

Hann sótti okkur síðan í Borders (geggjuð bókabúð svipuð og Barnes & Nobles)
og þaðan fórum við í bíltúr í sveitina til Cassidy's. Vorum ca 45 á leiðinni
og var að verða sex þannig að við komum í myrkri. Leiðinlegt að Anna gæti ekki
séð dýrðina í birtu, því hjá þeim er umhverfið ekkert annað! Þau búa á stórri
landareign við vatn og í garðinum eru villt dýr, dádýr o.fl.
Alltaf tekið vel á móti manni þar og BARA notalegt. Byrjað á ýmsu snakki og víni,
þau vildu endilega að við prufuðum þýskan líkjör, snaps með kanilbragði.
Fínn og reif í (40%). Svo nokkru seinna var sest við borðhald, Hugh fór með bæn
og við byrjuðum máltíð...síðasta salatið úr garðinum, heimatilbúið rauðkál with eleven ingredients og da,da! Ostruréttur með kexcrumbs og einhverju svakalegu gúmmulaði! hrikalega gott. Aldrei smakkað ostrur áður og hlakkaði til, varð ekki fyrir vonbrigðum. Vinur þeirra og nágranni veiddi þær um morguninn við vatnið þeirra :) snilld!

Stuttu eftir matinn og chatt fórum við í "skúrinn" hans Hugh...ef skúr skal kalla, meira eins og skúrahöll á tveimur hæðum. Á neðri hæðinni er æfingaraðstaða (enda karlinn fyrrverandi meistari í Bodybuilding!) og allt suðudótið hans fyrir listaverkin og ég notaði tækifærið og tók nokkrar abs...NEEDED! er alveg ekki alvarlega að spá í að fara í fitusog.
Á efri hæðinni eru but only few of his artwork með öllum ljósunum og undrunum að ótöldum hjóðfærunum. Hann er mikill tónlistarmaður, spilar á nokkur hljóðfæri.

Barbara er almost my mom...
Yndislegt kvöld í faðmi fólks sem hefur unun af lífinu og öllu sem því fylgir.

Frá Cassidy's fórum við beint til Larry og Michele og var vægt til orða tekið mikið fjör og gaman.

ALGJÖRT RÍKIDÆMI AÐ ÞEKKJA GOTT FÓLK!

Miðvikurdagur: tókum taxa í Bath & bodyworks (GOODNESS!) og Oldarann, short stop, heim, relax og útá völl um sex.

Flugið gekk vel heim, enginn snefill af FI613 og við fengum flutning frá 28 yfir i 14. Smart...aðeins eitt laust á Saga...
-------------------
Gæi sótti okkur og ég skellti mér í vinnuna um morguninn og heim frekar framlág um eitt. Var á fullu að versla í matinn o.fl. heimsótti pabba, ganga og frágangur á töskum og innihaldi þeirra.

Búið að vera geðveikt að gera síðan í vinnunni sérstaklega og utan.

Náði að lúlla í 15 mín. ótrúlegt hvað það gerði! fór svo í jólahlaðborð á Óðinsvé og very nice indeed. Mjög gaman og í góðum félagsskap Heklu starfsmanna.

Föstudagur:
Vinna og allt á fullu og ekkert nema forgangsbunkar...
Eftir vinnu fór ég beint í Hagkaup að versla inn smotterý og í Yggdrasil þar sem allt var tómt á Þjórsárg. Svo heim í málningargalla og niðrí vinnu að spreyja engla til að skreyta Tjarnarsalinn með.
Í fyrra gerði ég þetta í fyrsta skipti, keypti skraut og hengdi. Til eru ca 40 englar sem voru á sínum tíma sérpantaðir frá Barcelona en allir rosalega leiðinlega gráir og gloomy. Ég byrjaði á að spreyja þá hvíta og gyllti þá svo en núna bætti ég
á gyllinguna á þeim og bætti 9. stk. við núna og gyllti betur en í fyrra.
Er mjög sátt við útkomuna.

Í morgun var ég svo mætt 09:30 og var til 13:30 að hengja upp jólaskraut og englana
með Tomma húsv.

Fór heim í gulrótarsafa, Hagkaup, Yggdrasill, göngutúr og heim í mat og næs.+

Until next time....

No comments: