Tuesday, December 20, 2005

Helgin...

var svo sem viðburðarlítil, fékk reyndar pk. frá Amazon
á föstudagskv. innihald þessa pk. var Stevie Wonder, frekar
flottur, nýkominn út. Sameiginlegur "sjúkleiki" hjá okkur Larry.
Minn eigin sjúkleiki var einnig í pk. Alicia Keys unplugged MTV...
O MY GOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOD!!! hef ekki hlustað á annað síðan eða
horft, keypti cd og dvd, fyrir utan það hvað hún er GOODNESS falleg!
Er sérstakl. búin að hertaka tvö lög so far.

En! svo bakaði ég tvær, gerði rauðrófur, rauðkál, keypti jólatré,
kíkti í heimsókn á Lindarbrautina með innihald í sörur
og fékk að taka utan um aðeins fáa af þeim sem mér þykir vænt um.
Brian Björn lá bara á gólfinu og var algjörlega upptekinn
við að horfa á vegginn í austur :)
Mér tókst nú að ná ath. og við spjölluðum heilmikið og vorum algjörlega
sammála um hlutina :)
Ég beið svo aðeins eftir Guðrúnu og Indíönu en þær fóru í messu,
þá fékk ég eitt faðmlag í viðbót frá Indíönu og það er nú ekkert
leiðinlegt!
Karl Ingi orðinn löglegur kafari!!! bara flottur!

Á sunnudaginn var lærið sett inn um eitt í alveg spes
meðferð til 18:30, það klikkaði ekki frekar venju.
Kvöldið var svo afar notalegt í faðmi pabba og Margrétar.

Núna þarf ég að taka rúgbrauðið úr ofninum og fara með
part í vinnuna þar sem við ætlum að hafa föstudagskaffið
okkar núna með pökkum frá jólasveininum og ég veit ekki
hvað og hvað!

Eitt orð til að huga að fyrir þá sem vilja...

.......... ÞOLINMÆÐI.

xo!

No comments: