Saturday, December 31, 2005

Laugardagur, gamlársdagur, síðasti dagur 2005...

Það er ekkert öðruvísi!

Lítið annað í gangi þessa vikuna nema
að ná sér á strik vegna þess hvað maður
er heppin að geta borðað eins og maður vill!
Rétt að ná kílóinu af...

Ég hringdi í Jeff í gærkvöldi, goodness!
Rosalega gaman að heyra í honum, hann er
enn í Englandi og býr loksins með henni
Clair sinni! jamm og já :) hann er að springa
af hamingju. Hann bað að heilsa ykkur sem þekkið :)

Lá í rúminu mjööööööööög snemma í morgun að reyna
að ákveða mig hvar ég ætla að vera í kvöld.
Eitt gylliboðið í viðbót bættist við í gær, hjá
Sólveigu systur. Svona lítur þetta út...

Boð #1
Kristín systir, fjölsk., pabbi og Margrét verða þar líka/ Kalkúnn
Boð #2 Hadda og Haukur í Karfavogi, vinafólk þeirra og gestir eftir mat/ villibráðaveisla
Boð #3 Sólveig systir, fjölsk. og vinafólk Guðrúnar af vellinum, gestir eftir mat/Kalkúnn

Ég var alveg að spá í að breyta til, fara í Karfavoginn, sleppa brennunni á Valhúsarhæðinni og að hitta alla Nesbúana "mína"...en tókst í morgun að ákveða mig.
Ég ætla að vera hjá Kristínu, fyrsta boði og sjá til hvað verður með kvöldinu.
Ég er að spá í að dobbla pabba og Margréti að sækja mig svo ég geti haft bílinn hér
heima.

Jamm...núna ætla ég að sauma, breyta og laga, fara í heimsókn í Karfavoginn með nýbakað rúgbrauð, kíkja í Ikea ef opið og finna efni í púða, sauma meira, hlaupa o.s.frv.

Hljóp í gær og tók ágætis æfingu á eftir, æði! var að hlaupa á meðal 10km.

Hey!!! svo á ég nú alveg eftir að ákveða í hverju ég ætla að vera!!!

Love to you all! :)

No comments: