Monday, January 30, 2006

Mánudagur, mom's dagur 3...fyrstu myndir...




Ruth! takk fyrir comment, meiriháttar og með betra nafni so far! :)
Flutt? (Fyrir ykkur sem ekki vitið, þá hefur hún Ruth búið í Japan sl. ár)
Love you more!!! hehehehe...

Sunday, January 29, 2006

Seinna á degi "2 as a "proud" mom...

...stoltinu fer þverrandi...

Hann byrjaði svooooooooooo vel á dagblaðinu!
Núna? út um allt og ég stend hann nánast að því
í hvert skipti og held á honum beint á dagblaðið.
Ekki að virka.
Sólveig systir sagði mér af aðferð vinkonu
Önnu Lovísu úti í Memphis, nota vatnsbrúsa.
Sooo, var að því í fyrsta skipti áðan og hann
var ekki að fatta hvað í ósköpunum væri í gangi!
Frekar fyndið!
Talandi um vatn, setti hann í bað í dag í eldhúsvaskinum :)
Hann var ekki alveg að fatta þetta og fyrir rest vildi upp úr.

En ég hef verulegar áhyggjur af morgundeginum, skilja hann
eftir einann heima í gestaherberginu með lokaða hurð og búrið sitt.
(GOODNESS! BÚR! HVAÐ ER MÁLIÐ! HVAR ER DÝRAVERNDUNARFÉLAGIÐ NÚNA!!!???)

Hann er vælari og dekurdós Johnsson af verstu sort held ég!

Anyhooooooooooooooooo, keep you posted!

MOm...still proud :)

Mom, dagur 2

Þann 30. nóvember sl. fæddust 4 litlir Chihuahua,
3 stelpur og 1 strákur. Litli strákurinn kom síðast
og var voooooooooooða lítill og þurfti sérstaka
ummönnun. Á föstudaginn í öllu stressinu hringdi
hún Unnur í mig og sagðist hafa séð augl. í blaðinu
þar sem Chihuahua væri til sölu, ég hringdi og boðaði
komu mína daginn eftir þ.e. í gær.
Hann kom hlaupandi til mín og beint í hálsakotið!
Hvernig er hægt að standast það!? ekki hægt!

Eigandinn kunni nógu vel við mig til að treysta mér
fyrir honum og bauðst til að gefa mér afslátt þar sem
hún væri viss um að hann fengi gott heimili.
Frábært að hún skuli taka þetta svo alvarlega frekar
en að horfa einungis í peninginn.
Hann er með fína ættbók og fær bestu dóma frá Dýrasp.
í Víðidal.
Set mynd inn á morgun.

Hann er æði, nú er bara að finna nafn á son minn.

Nokkrar tillögur eru þegar komnar...
Máni
(frá pabba :)
Zorro
Finni
Snoopy
Snibbi

Feel free to join in!!!

Partíið gekk fínt, mjög gaman og síðasti gesturinn fór
um fjögur.

Proud mom!

Friday, January 27, 2006

Föstudagsmorgun...

Ekki kom hann í hádeginu í gær, ekki
eftir hádegi og ekki í gærkvöldi.
.......nenni ekki að fara út í hvaða
afsakanir voru hafðar fyrir þá þegar
loksins náðist á hann né trúi...
Hann segist ætla að mæta með strák
á eftir, rúmlega átta...

YOU KNOW WHAT?
Mér er eiginlega orðið sama, er svo
gjörsamlega búin að fá nóg af þessu.
Er og ætla að gera ráð, reyndar ákv.
í gær að partíið verður enn skemmtilegra
án fronta og tilheyrandi.
Við höfum þá altént eitthvað að tala um (alténthehehehe).

Það var farið austur í gær 12:45 og Helgi snillingur
keyrði bílaleigubíl frá Hertz.
Við unnum í nokkra tíma, hlustuðum á tónlist,
fórum í pottinn og enduðum á að borða ágætis mat.
Við lögðum áherslu nokkur á að leggja af stað snemma,
drógst pínu en hvað var hún? rétt fyrir níu, tíu í eða svo.

Það var hafist handa við að laga til sem hægt er v. eldhúss
og ég fór seint að sofa, var að verða 02:30 og
er núna komin á fætur sex.
Dagurinn leggst vel í mig :)

Sama góða og notalega og í gær fyrir ykkur sem indeed lesið...

Jákvæð orka og ást :)

Thursday, January 26, 2006

Fimmtudagsmorgun...eldhús hvað?

...can't say I didn't see it coming...
Eftir mikil andvörp, mikið af 1,2,3...
kl.22:30 hringdi smiðurinn hann Jón Dan
og þá var ég búin að telja svo oft upp að
10 og anda svo mikið djúpt (6 ár!) að
ég fríkaði út! Já, já, bara þannig.
Sagði allt sem (nánast, comon! maður getur
nú ekki alveg látið allt flakka)mér lá
á hjarta og fór ekki í felur með það hvað
ég var rjúkandi ill.
ÁN GRÍNS, HVAÐ ER FARGINS (takk Anna Lovísa:) MÁLIÐ!!!

Staðan: Allt enn í rúst, ég fer austur með vinnunni
á hádegi og kem einhverntíman í kvöld, partíið annað
kvöld og jeiiiiiiiiiii bara ÆÐISLEGT!

Hann sagðist ætla að koma í hádeginu í dag...ég á
bara eftir að sjá það.

Annars! :) Góðan og blessaðan daginn :)
Ég er með bros á vör núna sem endranær og skil ykkur
sem lesið eftir með þetta...

Jákvæð orka og ást :)

Wednesday, January 25, 2006

Seinna sama dag...

HVAÐ ER MÁLIÐ!

Uppþvottavél, hallóóóó!!!
ÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆði :)
Alveg að spá í að láta gefa okkur saman.

JOhnsson :)

Miðvikudagsmorgun og eldhúshelgin lengist...

Frontarnir koma í kvöld og vonandi kemur
hann með allt...we'll see...
(þetta kemur manni bara alveg hreint í opna skjöldu:)

So far er þetta FREKAR FLOTT!

Starfsdagur fyrir austan á morgun uppúr hádegi
með innkaupa- og rekstrarskrifstofu(mín) sem er
svo undir Þjónustu- og rekstrarsviði (mítt líka)
og undir allt sviðið flokkast allar þjónustumiðstöðvarnar
þar sem starfa u.þ.b. 900 manns.
Já, já, sei, sei...smá fróðleikur fyrir ykkur sem ekki vissuð.

Allavega förum við austur ef veður helst gott og vel verið að
maður taki með sér sundbolinn fyrir heita pottinn.

Á föstudaginn verður svo vinnupartýið hér með BUUUuglesi og
sýrðum rjóma með Toro lauksúpu, alveg róleg! allt að gera sig!

Johnsson!

Sunday, January 22, 2006

Sunnudagur og enn ELDHÚSHELGI

Allt að gerast!

Take out og vaskað upp í baðkarinu.
Einhver seinkun verður þar sem sá sem
átti að sprauta hurðirnar var ekki búinn
að því og þær koma því ekki fyrr en eftir
helgina...we'll see...1, 2, 3, 4, 5, 6...

Ég keypti hvítar mósæk flísar í gær í Vídd
og þaðan í Litaver að kaupa málningu þar sem
keyrt var á litla svarta Pólóinn minn! hvað
er málið! 3 skipti á nokkrum mánuðum, fyrst
á jeppann, svo á Corvettuna og núna á Pólóinn :(
Inn í hliðina á jeppanum, Matti vinur minn.
Aftan á Corvettuna í hringtorgi og nú á kyrrstæðann
Pólóinn...what can you do! fullorðin kona sem bakkaði
bara. Það er smá beigla á skottinu en ekki sprungið
úr lakkinu.

That's it for now...

Saturday, January 21, 2006

Laugardagsmorgun, ELDHÚSHELGI!!! jájájá...

Allt farið niður og stofan á HVOLFI!
En það er sko aaaaaaaaaallt í lagi :)
Éééééééééééééééég hlakka svo ti-hi-il!!!

Núna er ég búin að ákveða að mósæka
á milli við eldavélina...alveg að tapa mér!

Þarf að kíkja í eitthvað af öllum þessum
blöðum mínum núna.

:)

Friday, January 20, 2006

Early friday morning...ELDHÚSHELGI!!!!!!

LOKSINS, LOKSINS, LOKSINS...
Ég segi ekki..."það hlaut að koma að því"
því ég var á síðasta snúning og í orðsins
fyllstu merkingu...how far can you go!
Well, this far! YEIIIIIIII... :)

Allt á að klárast um helgina og fyrir utan það
að það er búið að kaupa stálvask, bl.tæki og viftu,
þá er búið að kaupa eitt stk. uppþvottavél! já, viti menn!
Bókhaldsvinkonur, you didn't see this coming! :)

Var að reyna að komast inn á thor.is...ekki að virka.
Ég hitti Þór í Hagkaup í gær og hann sagðist vera kominn
með þessa síðu og að ég ætti að sýna ykkur stelpunum, þið
mynduð alveg tapa ykkur yfir myndunum...hehehehe
Ég er semsagt að tala um einn af mínum kæru æskuvinum Þór
Sigurgeirsson frambjóðanda á Seltjarnarnesi, já, já :)

Eftir vinnu í gær, Yggó o.fl. fór ég til pabba þar sem þá
þegar var mættur Gunnar nokkur Guðjónsson, sonur Guðjóns
bakara á Króknum. Hann er næturvörður í Ráðh. og við erum
lengi búin að vera á leiðinni í heimsókn, hann hefur langað
að heilsa upp á karlinn. Ég sagði pabba að ég kæmi með óvæntan
gest og það reyndist óvænt og skemmtilegt.
Við Margrét sátum undir skemmtisögum úr fortíð, prakkarastrikum
og ein saga kemur hér...

Stebbi frændi Diddons (Sigurgeirs fyrrv.bæjarstj. á Nesinu) var að vinna
í Ameríku, í þetta skipti við að setja teina fyrir járnbrautir og var verið
að sprengja klappir og byrjað á að bora með traktor (sem þá var til) holur
sem svo dínamít var sett ofan í. Þetta voru u.þ.b. 20 holur í senn.
Nema hvað að í eitt skiptið var dínamít í einni holunni þegar einn gaurinn á
traktornum ætlaði ofan í holuna...BÚMM!!! og "það sást hvorki tangur né tetur
af stráknum meira" en Stebbi sem stóð þó nokkuð langt frá brotnaði, missti annað
augað og annað eyrað. "Hann fékk plasteyra sem var svona líka voða fínt en þó kalt
viðkomu" krakkarnir fengu að koma við eyrað, voða sport. Hann ferðaðist um alla Ameríku til að sýna eyrað, þetta þótti svo fínt og nýtt. Hann var á góðum
bótum alla tíð eftir og starfaði áfram í Ameríku við nánast allt. T.d. vann hann sem
rakari og kom hingað heim í eitt skiptið með voða fína rafmagnsrakvél og allir vildu
fá Stebba til að raka af þeim lubbana.


SNILLD! fleiri sögur síðar :) nú þarf ég að fara að taka mig til í vinnu!

XO!!! til ykkar sem vilja :)

Thursday, January 19, 2006

ÉG ER ELSKUÐ!!!

...og svo heppin að ég er látin vita af því!!!

Sakna þín Guðrún Hulda! takk :) XOOO!!!!!!!!!!!!!!

Byrjuð á Ricotta réttum Anna Lovísa? :)

Monday, January 16, 2006

Sunnudagur X

Fór aftur út á Nes og tók lengri göngu núna og trítaði fjörunni á
mig í þokkabót! Ahhhhhhh...... :)

Fór í bíltúr og í kjölfarið seint að laga kvöldmatinn...
Canneloni með brokkoli og ricotta að ógleymdu
HVÍTLAUKSBRAUÐINU!!! NAMM!!!

Já, já...

Sunday, January 15, 2006

Síðar...

Dósamaturinn gekk vel, nema hvað Anna komst ekki þar
sem she felt a bit under the weather.

Fajitas var jömmí og við sátum heillengi að dunda
okkur við velja, vefja o.s.frv.
Ýmislegt rætt að venju, tónlistin kom einnig við
sögu ásamt því að Trivialið var tekið og Ísrael
kom EKKI við sögu.
Vorum til að verða tvö.

Laugardagur:

Var komin snemma á fætur og út að moka
rúmlega níu.
Fór svo í Kringluna rúmlega ellefu og
það var ekki mjög erfitt að finna eitthvað
í Warehouse...elska þessa verslun! Ég átti
innleggsnótu og það voru komnar nýjar vörur.
Fékk mér buxur þar. Var þá reyndar búin að
koma við í Oasis og fann þar nýja vöru, svartan
angúru blandaðan kjól, mjög sætan og notaði
gjafakort á hann, smart!
Fór heim í safa og svo á næsta áfangastað, Smáralindina.
Þar var ég búin að ákv. að kíkja í Söru, tékka á jakka,
búnir, fór í Debenhams og fann þar ýmislegt í "skemmtilegu"
deildinni en á leið út sá mín.....stígvél, hey! á útsölu!
Aaaaaaaaaalveg róleg!
Fór í Hagkaup, heim, skipti um föt, keyrði út á Nes, lagði
bílnum við endann á Lindarbrautinni sunnan megin og labbaði
út í Suðunes og út að Gróttu, ÆÐI!!!!!!
Svolítið kalt en fátt um fólk og veðrið algjörlega Yndislegt.
Þetta var meiriháttar, algjör nostalgía, líður alltaf rosalega
vel við sjóinn reyndar, en þetta var vel til fundið.
Fór svo til pabba og Margrétar, var Þar í smástund þangað til
leið að kvöldmat þá heim í afganga og rólegheit.
Bara notalegt! :)

Friday, January 13, 2006

Föstudagur

CARMEN í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi, forsýning!
Fyrsta skipti sem ég nota mér boðsmiða
sem ég hef verið að fá í gegnum árin
og það var meiriháttar gaman!
Leikmyndin ÆÐI, einföld en smart!
Dansararnir frábærir! og dansarnir, búningar flottir
og tónlistin snilld, með sígauna slætti, eitthvað fyrir mig!
6 manna hljómsveit á hjólapalli á sviðinu, gítar, kontrabassi,
trommur, trompet, sax, klarinett og harmonikka.
Ásgerður Júníusd. sem lék Carmen fannst mér reyndar ekki alveg
nógu sannfærandi en það kann að lagast, hún var non the less
afar glæsileg og hefur rosalega sterka og sjarmerandi rödd þegar
hún passar nefið :)
Góð skemmtun.

"Dósamatur" í kvöld með G.P., G.Á., G.E., A.H., A.K. :)

Johnsson...

Wednesday, January 11, 2006

GOODNESSSSS!!!!!

ÓÞOLANDI ÞEGAR MAÐUR HEFUR LAGT "VINNU" Í AÐ SKRIFA
ÞETTA LÍKA BRÉF OG SVO *F*O*K*K*A*R* MAÐUR ÞVÍ UPP!!!DAMN!!!

Gott að "bitsið" skrúfaði mig upp þar sem að ég hefði
ekki getað farið með blessað krílið í hlaup.
Svo ég þarf að huga að framtíð hans og mín með áform í huga.
Fyrir svo utan það að eftir grennslan þá hefur komið í ljós
að betra er að huga VEL að ræktun og fl. áður en maður tekur
ákv.

Nema hvað!

Þarf að fá mér glerbúr að vinna í!!! helst loftlaust!!!

Dagurinn í dag...x...jÁá

ER að hlusta á geðveikan jazz sem ég fékk sendan frá Ameríku í dag.
Strákarnir Ned, Larry, Mark o.fl. tóku tónleika upp sem þeir héldu
þ. 6. nóvember sl. við mikla lukku og eftirtekt.
Þekki þá :) já, já! og Anna núna :) alveg róleg!

Done!

Johnsson!!!

Monday, January 09, 2006

Mánudagur

Hundahelgi í orðsins fyllstu merkingu.

EN, fór í heimsókn til Jakobs í Blómavali
á laugardaginn og var það ánægja að venju,
stríddi honum ponku... but he loves me!

Kíkti á Lindarbrautina tvisvar í gær til að kveðja
Guðrúnu og fjölsk. það gekk upp í seinna skiptið.
Fékk þar hlýju OG köku :)

Þvoði bílinn, hefði þurft að bóna hann en ég NENNTI
því ekki!

Johnsson...

Thursday, January 05, 2006

Fimmtudagur...what a day!

Borðar kú kjúkling? nei, bara spyr...



Er með Eagles í dvd núna á fullu! doesn't get any better!!!

x!

Sunday, January 01, 2006

1. janúar 2006 GLEÐILEGT ÁR!!!

Kíkti í Karfavoginn eins og ég ætlaði, Ikea og Everest lokað :(
Stoppaði aðeins hjá Höddu og Sigurði Snorra fór svo í bíltúr-
Heim og beint út að hlaupa, hljóp góðan spöl, dagur tvö og góða
æfingu á eftir. Svo var tekið til við eldamennsku fyrir kvöldið.
Sætann kartöflurétt og ávaxtasalat.
Björgvin sótti mig og við útá Nes.

Maturinn var æði að venju og mjög gaman. Fór svo á brennuna
með Magga og Björgvin, hitti allt Nesliðið "mitt" nema Sollu og Magga.
Það varð því ekkert af árlegu myndatökunni í það skiptið. Hitti Sigurgeir
fyrrv. bæjarstjóra, alltaf ljúft að hitta hann ásamt Þór og fjölsk.
Karl Ingi hetjan á brennunni og allir vildu myndatöku með stráknum sem
var í einkennisbúningnum og réði alveg yfir brennunni :)

Týndi strákunum og hljóp til baka og var komin í góðan tíma fyrir skaupið.
Við fengum skemmtiatriði ársins frá Kidda, algjör snillingur í uppistandi.
Svo var áfram borðað og borðað, skotið upp...
Kalli og Jóhanna komu svo NÝTRÚLOFUÐ!!! TIL HAMINGJU ELSKU Kalli og Jóhanna!!!
Miðnætti...2005...2006 tár, tár og flóð að venju, sprengingar og læti...goodness!
Björgvin keyrði mig svo til Sólveigar og þar var fullt hús nánast og mjög gaman.
Margrét og pabbi keyrðu mig svo heim.
Fínt kvöld.