Stoppaði aðeins hjá Höddu og Sigurði Snorra fór svo í bíltúr-
Heim og beint út að hlaupa, hljóp góðan spöl, dagur tvö og góða
æfingu á eftir. Svo var tekið til við eldamennsku fyrir kvöldið.
Sætann kartöflurétt og ávaxtasalat.
Björgvin sótti mig og við útá Nes.
Maturinn var æði að venju og mjög gaman. Fór svo á brennuna
með Magga og Björgvin, hitti allt Nesliðið "mitt" nema Sollu og Magga.
Það varð því ekkert af árlegu myndatökunni í það skiptið. Hitti Sigurgeir
fyrrv. bæjarstjóra, alltaf ljúft að hitta hann ásamt Þór og fjölsk.
Karl Ingi hetjan á brennunni og allir vildu myndatöku með stráknum sem
var í einkennisbúningnum og réði alveg yfir brennunni :)
Týndi strákunum og hljóp til baka og var komin í góðan tíma fyrir skaupið.
Við fengum skemmtiatriði ársins frá Kidda, algjör snillingur í uppistandi.
Svo var áfram borðað og borðað, skotið upp...
Kalli og Jóhanna komu svo NÝTRÚLOFUÐ!!! TIL HAMINGJU ELSKU Kalli og Jóhanna!!!
Miðnætti...2005...2006 tár, tár og flóð að venju, sprengingar og læti...goodness!
Björgvin keyrði mig svo til Sólveigar og þar var fullt hús nánast og mjög gaman.
Margrét og pabbi keyrðu mig svo heim.
Fínt kvöld.




2 comments:
Gleðilegt nýtt ár dúllan mín :)
kv.
GP
Gleðilegt ÁR!!!!!!!!!! Takk fyrir það gamla!!
Ævinlega
G.Elísbet!!
Post a Comment