Friday, January 20, 2006

Early friday morning...ELDHÚSHELGI!!!!!!

LOKSINS, LOKSINS, LOKSINS...
Ég segi ekki..."það hlaut að koma að því"
því ég var á síðasta snúning og í orðsins
fyllstu merkingu...how far can you go!
Well, this far! YEIIIIIIII... :)

Allt á að klárast um helgina og fyrir utan það
að það er búið að kaupa stálvask, bl.tæki og viftu,
þá er búið að kaupa eitt stk. uppþvottavél! já, viti menn!
Bókhaldsvinkonur, you didn't see this coming! :)

Var að reyna að komast inn á thor.is...ekki að virka.
Ég hitti Þór í Hagkaup í gær og hann sagðist vera kominn
með þessa síðu og að ég ætti að sýna ykkur stelpunum, þið
mynduð alveg tapa ykkur yfir myndunum...hehehehe
Ég er semsagt að tala um einn af mínum kæru æskuvinum Þór
Sigurgeirsson frambjóðanda á Seltjarnarnesi, já, já :)

Eftir vinnu í gær, Yggó o.fl. fór ég til pabba þar sem þá
þegar var mættur Gunnar nokkur Guðjónsson, sonur Guðjóns
bakara á Króknum. Hann er næturvörður í Ráðh. og við erum
lengi búin að vera á leiðinni í heimsókn, hann hefur langað
að heilsa upp á karlinn. Ég sagði pabba að ég kæmi með óvæntan
gest og það reyndist óvænt og skemmtilegt.
Við Margrét sátum undir skemmtisögum úr fortíð, prakkarastrikum
og ein saga kemur hér...

Stebbi frændi Diddons (Sigurgeirs fyrrv.bæjarstj. á Nesinu) var að vinna
í Ameríku, í þetta skipti við að setja teina fyrir járnbrautir og var verið
að sprengja klappir og byrjað á að bora með traktor (sem þá var til) holur
sem svo dínamít var sett ofan í. Þetta voru u.þ.b. 20 holur í senn.
Nema hvað að í eitt skiptið var dínamít í einni holunni þegar einn gaurinn á
traktornum ætlaði ofan í holuna...BÚMM!!! og "það sást hvorki tangur né tetur
af stráknum meira" en Stebbi sem stóð þó nokkuð langt frá brotnaði, missti annað
augað og annað eyrað. "Hann fékk plasteyra sem var svona líka voða fínt en þó kalt
viðkomu" krakkarnir fengu að koma við eyrað, voða sport. Hann ferðaðist um alla Ameríku til að sýna eyrað, þetta þótti svo fínt og nýtt. Hann var á góðum
bótum alla tíð eftir og starfaði áfram í Ameríku við nánast allt. T.d. vann hann sem
rakari og kom hingað heim í eitt skiptið með voða fína rafmagnsrakvél og allir vildu
fá Stebba til að raka af þeim lubbana.


SNILLD! fleiri sögur síðar :) nú þarf ég að fara að taka mig til í vinnu!

XO!!! til ykkar sem vilja :)

2 comments:

Anonymous said...

Ja hérna hér! Er ekki bara að koma uppþvottavél hjá minni. Ég ætlaði að spyrja þig um hana síðast en hugsaði, nei hún fær sér ekki svona tæki ha ha!!!!!!!!!
Guðrún El

Anonymous said...

Gratulera með bestu vinkonu húsmóðurinnar :)
Þetta er alveg BRÁÐNAUÐSYNLEGT tæki :)

kveðja,
GP