Sunday, January 29, 2006

Mom, dagur 2

Þann 30. nóvember sl. fæddust 4 litlir Chihuahua,
3 stelpur og 1 strákur. Litli strákurinn kom síðast
og var voooooooooooða lítill og þurfti sérstaka
ummönnun. Á föstudaginn í öllu stressinu hringdi
hún Unnur í mig og sagðist hafa séð augl. í blaðinu
þar sem Chihuahua væri til sölu, ég hringdi og boðaði
komu mína daginn eftir þ.e. í gær.
Hann kom hlaupandi til mín og beint í hálsakotið!
Hvernig er hægt að standast það!? ekki hægt!

Eigandinn kunni nógu vel við mig til að treysta mér
fyrir honum og bauðst til að gefa mér afslátt þar sem
hún væri viss um að hann fengi gott heimili.
Frábært að hún skuli taka þetta svo alvarlega frekar
en að horfa einungis í peninginn.
Hann er með fína ættbók og fær bestu dóma frá Dýrasp.
í Víðidal.
Set mynd inn á morgun.

Hann er æði, nú er bara að finna nafn á son minn.

Nokkrar tillögur eru þegar komnar...
Máni
(frá pabba :)
Zorro
Finni
Snoopy
Snibbi

Feel free to join in!!!

Partíið gekk fínt, mjög gaman og síðasti gesturinn fór
um fjögur.

Proud mom!

2 comments:

Anonymous said...


Sorry gleymdi að afboða mig í partýið, Ég mæli með því að hundurinn fái eftirnafnið Johnsson
með bestu kveðju og hlakka til að sjá prinsinn!! Guðrún Elísabet!!!

Anonymous said...

Hæ jónsí
Til hamingju með frumburðinn, ég trúi því að þú sést stolt móðir. Ég væri alveg í skýjunum. Ég bíð spennt eftir mynd af honum.