Sunday, February 26, 2006

Sunnudagur...8km8km8km...

Mín dooooltið þreytt núna.

Í gær fórum við nokkur úr vinnunni á Esjuna,
lögðum af stað við Esjurætur 12:05.

Yndislegt veður! vor í loftinu og ég hlakka til sumarsins!
Á leið niður var svo komin þoka á toppinn.
Fórum alla leið, ég er ekkert viss um að ég
fari alla leið aftur, þetta var í annað skiptið og
ég sé ekki ástæðu fyrir því að leggja þetta á mig
ef ég ekki þarf.
Þetta er í fyrsta lagi ekki réttlátt gagnvart þeim sem eru með manni.
Ég hefði náttúrulega ekki farið ein upp á topp,
en EF ég hefði farið ein þá hefði ég bara tekið upp gemsann
og hringt í 112.

8,7km, smart :)

Í morgun kl. 10:00 fór ég svo í Karfavoginn og við Hadda fórum
í kraftgöngu, 7,75km á 01:01 með Sigurð Snorra í kerrunni, nokkuð gott.
Eins og þetta hefði ekki verið nóg, þá skelltum við Hadda okkur einnig í
Salsaeróbikk tíma v.Vetrarh. í World Class kl. 13:30, rétt slapp, vorum 6
en tíminn hefði ekki verið ef einum færri.
Flottur tími, ég er með noooooooookkuð gott þol, stóð mig frekar vel.
Klukkutíma púl og geðveik brennsla, frábært.
Fyrsta manneskja sem ég hitti í andyrinu var Bjössi, bara gaman að hitta
hann alltaf og ekki annað hægt en að þykja vænt um góðan vin.

Ég fékk rembingskoss og faðmlag og öfugt.
Hann átti ekki von á að sjá mig þarna! :)

Núna var ég að koma frá pabba og Margréti, vorum aðeins að plana
afmælið hans næstu helgi, 5. mars sem verður haldið hjá Kristínu systur.
Fámennt og góðmennt.

Ég er alveg að finna fyrir framanverðum lærunum núna...
Húsið á sléttunni var tekið á leið niður af Esjunni :)

Guðbrandur felldur... en ég þekki naut sem er miklu vinalegra ;) Moo! :)

Jákvæð orka frá mér!!!
:)



Thursday, February 23, 2006

Fimmtudagur

Ég er búin að hlægja mikið af commentunum í fyrra pósti!
En núna? nýjar myndir af Chico sem er orðinn 1,5kg! já takk fyrir.

Sést pínu í bumbuna :)
Ég setti hann í flís regnkápuna í gær, hann þóttist ekki geta labbað...
HANN ER SÆTASTUR, næst skemmtilegastur og bestur!!!



Tuesday, February 21, 2006

Þriðjudagur


The Most Valuable Thing in the World

Sozan, a CHINESE zen master, was asked by a student:
"What is the most valuable thing in the world?"
The master replied: "The head of a dead cat."
"Why is the head of a dead cat the most valuable thing in the world?"
inquired the student.
Sozan replied: "Because no one can name its price."

Sunday, February 19, 2006

BÍDDU! er ekki konudagurinn í dag? einmitt... #2 sunnudag...

...og, FRIÐURINN ÚTI! varð að blogga
meira þar sem fyrsta geltið heyrðist
frá Chico áðan...O MY GOOOOOOO...
Hávaðinn frá 1100 grömmum! hvað er málið!
Ég var að ryksuga og hann gjörsamlega trylltist!
Óð í hausinn á henni eins og hann væri að fara
að drepa ljón!
Þegar ég var að reyna að ná honum endaði með því
að ég varð í orðsins fyllstu merkingu að stökkva á hann!
Gat verið að ég myndi lenda á veika hnénu.
Varð að loka hann inni á meðan.
Ef hann gæti skammast sín, þá væri hann
að því núna!
Hann var aðeins rólegri þegar ég skúraði.
Svo er alveg ljóst að ég get ekki sleppt honum lengur
lausum úti í garði, hann bara hleypur þangað sem hann
vill og hlustar ekki á mig.

Já, til hamingju með konudaginn...

Moo.............. :(

...By the way, var vigtaður og er orðinn 1400gr.

Til hamingju Ísland/sunnudagur

Hriiiiiiiiiiiiikalega var gaurinn ILLA hallærislegur
sem tók mækinn af henni upp á sviði!!! maður lifandi!
Hann hefði betur sleppt því.
Engu að síður fannst mér frekar gaman í gær og kaus
Ekki bara Friðrik Ómar heldur líka Sigurjón Brink,
vitandi að Silvia myndi vinna.
Mér fannst þeir flottir, reyndar fannst mér flest lögin
góð nema kannski Ómars lag og lagið sem Dísella söng.

Anyhooooooooooooooo.........
Búin að vera frekar upptekin í dag í hinu og þessu,
fór t.d. með soninn í göngutúr í nýju beisli sem actually passar,
hann kemur nú vonandi til með að venjast því.
Tók loksins niður seríurnar af svölunum og í garðinum, ekki
lítið verk það! goodness! en góður dagur fyrir það non the less,
Yndislegt veður :) Ætlaði í göngu með Höddu en náði því ekki, steikin
inn fyrir klukkutíma, pabbi og Margrét í mat í kvöld.
Lambalæri með öllum pakkanum...eins gott að hafa það rétt eldað...if
you get my drift...lalallaaa...

...Moo!!!

Nema hvað!!! better get to it!

Love to you all!

Elsku besta Guðrún Hulda, ég sakna þín og ykkar :)
xo!!!

Tuesday, February 14, 2006

HAPPY VALENTINE'S DAY!!!





Allt vaðandi í hvítu, bleiku og rauðu
í amerísku búðunum núna og allir á síðasta
snúning að kaupa eitthvað í þeim litum, annað
og eða hjartalaga súkkulaðiöskjur troðfullar af
fat free súkkulaði...eða þannig.

Hér á Íslandi? nóbb...enda sumir með þrjóskuna í
fararbroddi og ekki einu sinni hægt að ræða það
að þetta sem og eitthvað annað eigi rétt á sér hér.
Við hér erum einmitt ekkert americanised (RIGHT!) hvað þá
að við viljum það, sumt er bara skemmtilegra en annað
og sumt hentar einum betur en öðrum.

Sumir eiga líka hugmynd fyrr en aðrir eða tala um hugmynd
fyrr en aðrir. Stundum hefur þetta ekkert með þrjósku
að gera, stundum er þetta bara álitamál hvers og eins.
Svo má segja um margt annað.

Flest erum við uppfull af hugmyndum en nýtum þær misjafnlega
eða náum að nota hugmyndaflugið til að koma þeim í framkvæmd.

Flest erum við líka með hjartað á réttum stað,
annað er svo hvort við kunnum eða viljum nota það eins og "Á"
að gera eða eins og við "VILJUM" gera.

Í dag er elskendadagurinn víðar en í Ameríku.
Hann er út um allan heim,
hvort sem hann heitir einhverju nafni eður ey.

Frá mér svona í morgunsárið...
ÞORUM! verum jákvæð og opnum hjartað okkar til þeirra
sem eiga það skilið og líka til þeirra sem við kannski
teljum ekki eiga það skilið.
Það eiga allir skilið að vera elskaðir.

Ég, er ótrúlega heppin að eiga svo marga
að sem elska mig.

JÁKVÆÐ ORKA OG ÁST!!! og að sjálfsögðu bros :)

Í tilefni dagsins...
NED, LARRY & MICHELE! HAPPY VALENTINE'S DAY!!!

Sunday, February 12, 2006

Sunnudagur

Chico is the name! loksins komin ákvörðun
og algjörlega að fíla þetta.
Chico=the little one og spánskt, já, já :)

Annars bara fínt, Tjarnardansleikurinn var
í gærkvöldi, mjög gaman og aldrei verið eins
margt, 200 manns hérumbil.
Kemur í raun ekki á óvart þar sem það er búin
að vera 50% starfsmannaaukning undanfarið.

Fordrykkur við undirspil Kidda og ég tók myndir
af mörgum á rauða dreglinum.
Forréttur, aðalréttasteikarhlaðborð, deser.
Fínt. Pétur úr strákunum kom og skemmti,
GOODNESS HVAÐ HANN ER SKEMMTILEGUR!
Eyvi og Stebbi H. komu og skemmtu. Það er skol
ekkert leiðinlegt að horfa á Stebba...rrrrr....
Síðan tók við hljómsveitin Touch, snilld!

Uppúr tvö var svo arkað á Vínbarinn, Rex eftir að
við ákv. að fara ekki á Hressó, þaðan á Torvaldsen
sem oops var lokaður og þá fór mín útí Ráðhús, downl.
328 myndum og reyndi ítrekað að ná bíl.
Kræst hvað það var kalt í nótt!
Var komin heim um 04:30 ca.
.......x

Komin á fætur fyrir tíu, fékk mér morgunmat og gat
vart beðið eftir að fara að sækja soninn.
Saknaði hans mikið í nótt og engin kelustun í morgun :(
Helgi vildi endilega bara koma með hann sem og hann gerði
og fékk sér kaffi og Chico var eiginlega bara að dissa mig.
Greinilega farið vel um hann hjá feðgunum.
Við Helgi vinnum saman og hann passaði Chico í gær,
fyrir ykkur sem ekki vissuð.

Hmmm og ha... spá í að fara að ryksuga, skúra og þurrka af.
Mikið vildi ég að það væri laugardagur.

Ég og Chico :)

Tuesday, February 07, 2006

Þriðjudagur




Hér þarf ekkert að segja...

Sunday, February 05, 2006

Goodness!!!

GARETH KOMINN!!!
Hvað verður hálfvitinn lengi??????

JOHNSSON!

Sunnudagsmorgun

Fór í enn einn Kringlu/Smáral. leiðangur í gær...gekk
betur en um daginn...Zara rules!!!
Varð að láta sjá mig í nýju fötunum og fór óvænt í þetta líka
fína matarboð í gærkvöldi þar sem no less than 18 manns
voru í mat.
Kom á góðum tíma...mjög gaman og setið lengi við matarborðið
við þessar líka kræsingar! Alltaf gaman að borða góðan
mat í góðum félagsskap. Kynntist fullt af nýju og spennandi
fólki, allavega helmingnum og þegar búið að ákveða næsta
matarboð! hlakka mikið til!

Ég fékk í dýrabúðinni í Sm.lind flíspeysu á soninn sem ég
var svo mjög spennt að setja hann í er heim kom.
Það gekk nú ekki betur en svo að þetta var svo hrikalega fyndið
að ég gat ekki klárað að klæða hann! Ég sat á eldhúsgólfinu, horfði
á hann veltast fram og til baka, ekki að fatta hvað var eiginlega
í gangi! Ég hef ekki hlegið svona mikið í laaaaaaangan tíma!!!
By the way, peysan of stór, fer og skipti á morgun.
Svo seinna um daginn þegar við fórum til ömmu og afa að máta
lopapeysuna þá bara beit hann mig, var sko alveg búinn að fá
nóg af mér.

Hann verður duglegri og duglegri að pissa og kúka þar sem hann
á að gera það og ég hlakka til þegar það er orðið gott.
Setti ólina á hann aftur áðan og gekk mun betur en í gær, en
hann á pínu í land þar. I don't blame him!

Hljóp í gær, aftur í dag, love it!
Það er nú líka veðrið til þess, spurning um
að taka líka góðan hljólatúr :)

...og nei, ekki komið nafn á hann enn! Hello people!!!???

Wednesday, February 01, 2006

Miðvikudagur, Takk öll fyrir commentin!!!

...og GP takk fyrir heimasíðurnar, tékka
á þeim, ekki vanþörf á þar sem ekki er búið
að finna nafn enn á soninn.

Hann er svooooooooooo duglegur! farinn að pissa
eins og strákar eiga að pissa (hérumbil alltaf)
og er farinn að venjast heimilinu sínu, hleypur
út um allt (mesta krútt í heimi!) og lætur sig
renna :) Ég fer ekki á fætur fyrr en 06:30 núna,
það er kelustund í hálftíma :)mmmmmm....
Hann er duglegur að borða og fékk harðfisk í gær
og ost :) fyrir utan þurrmatinn sinn sem hann er
alveg að fíla.

Uppáhaldið núna er þessi hundur sem mamma átti,
hann tuskar hann til eins og hann sé 10x stærri.