Tuesday, February 14, 2006

HAPPY VALENTINE'S DAY!!!





Allt vaðandi í hvítu, bleiku og rauðu
í amerísku búðunum núna og allir á síðasta
snúning að kaupa eitthvað í þeim litum, annað
og eða hjartalaga súkkulaðiöskjur troðfullar af
fat free súkkulaði...eða þannig.

Hér á Íslandi? nóbb...enda sumir með þrjóskuna í
fararbroddi og ekki einu sinni hægt að ræða það
að þetta sem og eitthvað annað eigi rétt á sér hér.
Við hér erum einmitt ekkert americanised (RIGHT!) hvað þá
að við viljum það, sumt er bara skemmtilegra en annað
og sumt hentar einum betur en öðrum.

Sumir eiga líka hugmynd fyrr en aðrir eða tala um hugmynd
fyrr en aðrir. Stundum hefur þetta ekkert með þrjósku
að gera, stundum er þetta bara álitamál hvers og eins.
Svo má segja um margt annað.

Flest erum við uppfull af hugmyndum en nýtum þær misjafnlega
eða náum að nota hugmyndaflugið til að koma þeim í framkvæmd.

Flest erum við líka með hjartað á réttum stað,
annað er svo hvort við kunnum eða viljum nota það eins og "Á"
að gera eða eins og við "VILJUM" gera.

Í dag er elskendadagurinn víðar en í Ameríku.
Hann er út um allan heim,
hvort sem hann heitir einhverju nafni eður ey.

Frá mér svona í morgunsárið...
ÞORUM! verum jákvæð og opnum hjartað okkar til þeirra
sem eiga það skilið og líka til þeirra sem við kannski
teljum ekki eiga það skilið.
Það eiga allir skilið að vera elskaðir.

Ég, er ótrúlega heppin að eiga svo marga
að sem elska mig.

JÁKVÆÐ ORKA OG ÁST!!! og að sjálfsögðu bros :)

Í tilefni dagsins...
NED, LARRY & MICHELE! HAPPY VALENTINE'S DAY!!!

2 comments:

Nutty but Sweet said...

Happy Valentinesday!!! smoooooooooooooch og stóóórt knús!

Anonymous said...

Happy Valentines Day
Kiktu hvad eg gerdi i tilefni dags
luv ya gudrun og co....