Chico is the name! loksins komin ákvörðun
og algjörlega að fíla þetta.
Chico=the little one og spánskt, já, já :)
Annars bara fínt, Tjarnardansleikurinn var
í gærkvöldi, mjög gaman og aldrei verið eins
margt, 200 manns hérumbil.
Kemur í raun ekki á óvart þar sem það er búin
að vera 50% starfsmannaaukning undanfarið.
Fordrykkur við undirspil Kidda og ég tók myndir
af mörgum á rauða dreglinum.
Forréttur, aðalréttasteikarhlaðborð, deser.
Fínt. Pétur úr strákunum kom og skemmti,
GOODNESS HVAÐ HANN ER SKEMMTILEGUR!
Eyvi og Stebbi H. komu og skemmtu. Það er skol
ekkert leiðinlegt að horfa á Stebba...rrrrr....
Síðan tók við hljómsveitin Touch, snilld!
Uppúr tvö var svo arkað á Vínbarinn, Rex eftir að
við ákv. að fara ekki á Hressó, þaðan á Torvaldsen
sem oops var lokaður og þá fór mín útí Ráðhús, downl.
328 myndum og reyndi ítrekað að ná bíl.
Kræst hvað það var kalt í nótt!
Var komin heim um 04:30 ca.
.......x
Komin á fætur fyrir tíu, fékk mér morgunmat og gat
vart beðið eftir að fara að sækja soninn.
Saknaði hans mikið í nótt og engin kelustun í morgun :(
Helgi vildi endilega bara koma með hann sem og hann gerði
og fékk sér kaffi og Chico var eiginlega bara að dissa mig.
Greinilega farið vel um hann hjá feðgunum.
Við Helgi vinnum saman og hann passaði Chico í gær,
fyrir ykkur sem ekki vissuð.
Hmmm og ha... spá í að fara að ryksuga, skúra og þurrka af.
Mikið vildi ég að það væri laugardagur.
Ég og Chico :)
Sunday, February 12, 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Til hamingju með nafnið Chico :)
kveðja,
GP
æææææ Chico! voff voff
Post a Comment