Sunday, February 26, 2006

Sunnudagur...8km8km8km...

Mín dooooltið þreytt núna.

Í gær fórum við nokkur úr vinnunni á Esjuna,
lögðum af stað við Esjurætur 12:05.

Yndislegt veður! vor í loftinu og ég hlakka til sumarsins!
Á leið niður var svo komin þoka á toppinn.
Fórum alla leið, ég er ekkert viss um að ég
fari alla leið aftur, þetta var í annað skiptið og
ég sé ekki ástæðu fyrir því að leggja þetta á mig
ef ég ekki þarf.
Þetta er í fyrsta lagi ekki réttlátt gagnvart þeim sem eru með manni.
Ég hefði náttúrulega ekki farið ein upp á topp,
en EF ég hefði farið ein þá hefði ég bara tekið upp gemsann
og hringt í 112.

8,7km, smart :)

Í morgun kl. 10:00 fór ég svo í Karfavoginn og við Hadda fórum
í kraftgöngu, 7,75km á 01:01 með Sigurð Snorra í kerrunni, nokkuð gott.
Eins og þetta hefði ekki verið nóg, þá skelltum við Hadda okkur einnig í
Salsaeróbikk tíma v.Vetrarh. í World Class kl. 13:30, rétt slapp, vorum 6
en tíminn hefði ekki verið ef einum færri.
Flottur tími, ég er með noooooooookkuð gott þol, stóð mig frekar vel.
Klukkutíma púl og geðveik brennsla, frábært.
Fyrsta manneskja sem ég hitti í andyrinu var Bjössi, bara gaman að hitta
hann alltaf og ekki annað hægt en að þykja vænt um góðan vin.

Ég fékk rembingskoss og faðmlag og öfugt.
Hann átti ekki von á að sjá mig þarna! :)

Núna var ég að koma frá pabba og Margréti, vorum aðeins að plana
afmælið hans næstu helgi, 5. mars sem verður haldið hjá Kristínu systur.
Fámennt og góðmennt.

Ég er alveg að finna fyrir framanverðum lærunum núna...
Húsið á sléttunni var tekið á leið niður af Esjunni :)

Guðbrandur felldur... en ég þekki naut sem er miklu vinalegra ;) Moo! :)

Jákvæð orka frá mér!!!
:)



No comments: