Friday, May 12, 2006

Ég þekki mann sem þekkir mann...

...og var því svo heppin að njóta eftirfarandi á Hótel Holti í gærkvöldi...

Veislan byrjaði 19:30 með fordrykk, gott freyðivín og míngul
við aaaaaaaaaaaalls konar fólk héðan, frá Svíþjóð og Ástralíu.
Varð hugsað til þín Kalli, þú hefðir gjörsamlega fílað þig og fittað þarna
inn. Ég talaði þarna við aðalgæjann frá P.L. sagði honum að sjálfsögðu
að ég ætti bróður sem væri nýkominn úr afar ánægjulegri ferð frá hans
heimalandi. Hann er nýbúinn að heimsækja Coralrifin sjálfur í fyrsta
skipti en hann býr svo sunnarlega,
langt að fara...eða eru Coralrifin sunnarlega :)

Svo hófst veislan...


PETER LEHMANN MATSEÐILL
dagana 11. til 14. maí 2006


MATSEÐILL
Hörpuskelsterrín með skelfisksalati
og sítrónugrasfroðu
Peter Lehmann Semillon 2004
Barossa Valley Australia
Langtímaeldaður þorskur á kartöflukremi
Peter Lehmann Chardonnay 2004
Barossa Valley Australia
Rauðvínsgljáð nautalund með reyktri nautatungu,
smátt skornu grænmeti og sósa "Bordelaise"
Peter Lehmann Eden Valley Shiraz 2001
Eden Valley Australia
Peter Lehmann Stonewell Shiraz 2000
Barossa VAlley Australia
Aprikósubaka, döðlukompot
og dvergappelsínu- rúsínuí
Peter Lehmann Botrytis Semillon 2002
Barossa Valley Australia
Þetta var allt gott, misjafnlega gott þó.
Allt var þetta skreytt mjög fagurlega og
MIKIÐ í lagt.
Þorskurinn var rosalega góður og besta vínið var
Peter Lehmann Stonewell Shiraz 2000
Roooosalega gott! kostar rúmar 3 hér.
Fékk far heim með hjónum sem ég sat til borðs
með eftir kaffi, brjálæðislega góðar heimatilbúnar
karamellur o.fl. og var komin heim rétt fyrir eitt.
Flott kvöld og skemmtilegt.

No comments: