Monday, May 08, 2006

Rétt rúmlega sex...

...og já búin að vera löt við skrifin.
Margrét var 75 ára á föstudaginn
en ég var of upptekin við að fara á Vorhátíð Pennans
sem varð til þess að það var farið á Vínbarinn,
Hornið og heim, gaman.
Hornið klikkar ekki, bestu pizzur í heimi!

Óvissuferð Ráðhússins var svo á laugardeginum,
var mætt rúmlega níu í bakaríið til að sækja þau 12 snittubrauð
sem ég átti eftir að smyrja fyrir nesti
(bagette með skinku, osti, tómötum, arugula og spínati, namm).
Sem betur fer naut ég frábærs teymis, Bogga, Kristín Vald.,
María og Tommi sá um kælirinn.
Stundum ekki viss frá hvaða fast planet ég haldi að ég sé frá.
Allt hófst þetta á tíma og við lögðum af stað
út í "óvissuna" í lofuðu frábæru veðri.
Meiriháttar veður, mjög skemmtilegur og fróðlegur dagur.
Við fórum Suðurnesjarúnt og Hörður Gíslason
(strætó) sá um leiðsögn og gott betur en rómaður fyrir brábæran fróðleik
og hann stóð vel undir því.
Hann segir svo skemmtilega frá öllu og hefur svo gaman
af þessu sjálfur að hann gleymdi tíma og stað, og við líka!
Öll vorum við yfir okkur ánægð með hann og glöð með ferð.

Í gær fór ég með Chico að hjóla og setti hann í körfuna,
hann var óþekkur, spurning um að ath með púða
þannig að hann geti séð betur en honum fannst hann
sjá í gær, hann var í því að standa.
Ég er ekki viss um að það finnist annar eins dekraður hundur...
Ég náði sólbaði í gær, freeeeeeeeeeeeeeeeekar næs!

Jamm


1 comment:

Anonymous said...

Eru sumir roggnir með sig í körfunni :)