Thursday, June 08, 2006

I'M ONE OF THE HOMEGIRLS OF THE BOKHALD!!!

Takk Gyda! vona ad stelpurnar seu thessu nu sammala ;) eg er afar stolt!

EN, her kemur dagbok Chico, yfir til thin Borgar...(takk, takk og takk:)

Dagur 1.
Á hólnum hefur allt gengið eftir áætlun. Chico virðist una hag sínum vel þar sem hann hefur leikið við hvern sinn fingur með krökkunum. Heiðbjört fór með hann í göngutúr í gær þar sem hann merkti sumaróðal sitt eins og stórhundum sæmir ;o). Nóttin gekk vel fyrir sig og öll sváfum við sem steinn.


Dagur 2.
Nýja leiktækið: Í sumarhöllinni komust þjónustufulltrúar Chico að hann hefði ákaflega gaman að nýju leikfangi. Upp komst um það þegar húsmóðirin hóf sína daglegu moppun á heimilinu. Moppan var þvílíkt skemmtileg bæði að elta og eins var ýmislegt sem kom í ljós þegar moppað var sem hægt var að skoða. Greinilegt að þetta þarf að nota meira. Hann hefur borðað vel en skilaði stóru stykkjunum sínum kannski ekki alveg á rétta staði, heldur á rúmteppi Heiðbjartar ;o). Chico hefur sofið vel í sumarhúsinu þannig að dagur 2 gekk mjög vel.


Dagur 3.
Heiðbjört hefur greinilega náð að vinna fullnaðar traust Chico. Hún þurfti að skreppa af bæ í gær í 2 klst. og sinnti ég og Axel Chico á meðan. í hálftíma var hann eyðilagður og leitaði og leitaði að Heiðbjörtu. Það var sama hvað ég gerði reyndi að leika við hann og allt en gekk ekki. Hann vældi bara og vældi eftir að hún fór. Um kvöldið komumst við að því að honum er ekki sérlega vel við að fara í lopapeysuna sina en að lokum hafðist það og þegar hann var kominn í hana var hann hinn ánægðasti. Chico hefur farið daglega út og eftir kvöldmat var hann tæpa 2 tíma úti með Heiðbjörtu og kom hinn sællegasti inn og steinsofnaði fljótlega alveg búinn.

Goodness hvad eg er stolt af syninum!!! ...well, fyrir utan thad ad hann veit betur en ad gera #2 i rumid hennar Heidbjartar.

Borgar, thu ert snillingur i ad segja fra!


No comments: