Wednesday, August 16, 2006

Sunday, August 13, 2006

Spurning um að halda áfram

Heilmikið gerst á rúmum mánuði, nenni
ekki að telja helminginn upp.
Fór á Gay Pride í gær, gaman að venju, fannst
miklu betra skipulag í ár hvað varðar skemmtiatriði
en gangan sjálf tók of langan tíma. Mind you, ég fór
ekki í gönguna frekar en fyrri daginn, ég planta mér
niður fyrir framan sviðið á MR túninu og læt fara
eins vel um mig og hægt er.
Rúna birtist allt í einu fyrir framan mig rétt eins og
við hefðum mælt okkur mót. Svo kom Helen og Soffía
og allar vorum við í einni kös eins og allir aðrir.
Sólveig og Bjössi voru fyrir aftan okkur, rétt náði að
heilsa Sólveigu.
Ég fékk 3 símtöl frá Aldísi, fyrst sagði ég eftir að hafa
sagt ha 17 sinnum því ekki beint hægt að tala í símann
þarna, " Aldís, ég þekki enga Aldísi"... Anna Karen!!!
auðvitað systir hennar Öddu. Adda semsagt komin þessi
elska og ég hlakka BARA til að hitta hana og krakkana.

Hljóp í gærmorgun 5km og tók Chico með sem stóð sig
að venju eins og hetja. Hann er miklu duglegri en ég,
enda hundur :)

Ég er að sjálfsögðu með fullt á listanum (to do) mínum
í dag eins og aðra daga og er alveg að spá í að fara að byrja
á einhverju.