Saturday, July 14, 2007

Viku síðar og...

...hvað hefur svo sem drifið á daga mína...

Í öllu falli það sem stendur upp úr er by far bátsferðin með
Björgvin frænda á þriðjudaginn. Maður lifandi hvað það var
gaman! Ég lifi enn á því og rétt laus við harðsperrur í vinstri
hendinni á því að halda mér svo ég hreinlega dytti ekki fyrir borð!
Með hægri hendinni hélt ég svo í Björgvin :) pínu fyndið :)
Þetta var algjört æði!

Gærkvöldið var notalegt, fórum nokkur úr vinnunni á Hornið eftir að hafa
kvatt eina sem er að fara í vinnu f. ríkisstjórnina.
Hornið alltaf smart og jafngott.

Þvílíkt veður! Þarna voru skrilljón manns á Austuvelli í þessari líka blíðu og golan hlý
og bara notaleg. Sjaldséð sjón hér og svo seint að degi.

Ég er að fara í viku frí og hlakka til að fara á Esjuna, Bláa Lónið, göngu- og hjólatúra
með Chico mínum :) Hann verður æ duglegri á hjólinu...í körfunni :)
Svo kannski mála ég eitt og annað :)

Saturday, July 07, 2007

Laugardagsmorgun

Úti hreyfist ekki hár á höfði, milt og Yndislegt.
Hver bíllinn við annan við flugvöllinn, margir úti
á landi þessa helgina.
Ég er aftur að velta fyrir mér hvar ég á að byrja
á mínum ToDo lista...ekki svo langur, heldur erfiður.
T.d. skúrinn, taka til undir stiganum, nú þegar búin að
taka höndum saman í garðinum við alls konar ýmislegt.

Sunday, July 01, 2007

Sunnudagar eru alveg fínir sko...

Ég uppgötvaði um daginn að ég er svo rík að eiga
fimm stjúpsistkyn! geri aðrir betur!
Þrátt fyrir að hafa átt þau í hérumbil tuttugu ár
fattaði ég þetta ekki fyrr en hún Unnur í vinnunni
kveikti á mér þegar ég enn eina ferðina var að útskýra
að ég ætti óblóðskild ættmenni í Ameríku.
Mér fannst þetta mjög merkilegt og stækkaði um heilan helling.
Svo kom Linda með 3 börn af fjórum og ég kallaði hana stjúpsystur :) og hún mig :)