Sunday, October 23, 2005

Sunnudagskvöld og heilt ár í næstu Sviðamessu!!!

Að venju og sem betur fer var ROSALEGA GAMAN á Sviðamessunni!!!
JOhnsson!!! Skemmtiatriðin sem eru alltaf heimatilbúin voru snilld
og komu verulega á óvart. Skreytingin á salnum held ég að hafi tekist
afar vel...if I say so my self!
Anna systir ;) tók sig vel út með límbandið v.sólarupprásarinnar sem var öll
í bútum og hafði ég þó nokkuð fyrir að skera út en var algjörlega búin að sjá
fyrir mér hvernig ég vildi hafa þetta. Reyndar svolítið eins og það sé mikið
af fuglum sem er gott og satt :) Þemað var haust og allir þeir yndislegu litir
sem því fylgja. Svo tókum við til við að raða niður á borðin og breyttum aðeins
út af venjunni.
Ég tjattaði goodness lengi við Ednu (sem var aðalumsjónarmaður á barnum og þjónustunni og hún er bara LANGFLOTTUST!) nýkomin á eftirlaun. Við ræddum ýmislegt og ýmislegt.
Hún á líka bara falleg börn! sem hjálpa henni við vinnuna á Sviðam. þ.e. börnin hennar hjálpa til við vinnuna :)

Ég fór svo á Thorvaldssen og hitti þar eitthvað af mínu liði og þaðan á Rex þar
sem ég hitti enn meira af mínu liði og ekki mínu liði.
Fór stuuuuuuuttu seinna í Ráðhúsið og reyndi að hringja á bíl, var ekki alveg að
ganga, svo ég labbaði af stað og fékk svo bíl eftir ca fimm sem betur fer, var gjörsamlega að frjósa!!!

Í dag er ég búin að vera að gera hitt og þetta, fór seinnipartinn í langþráða kraftgöngu með garminn minn sem ég elska!

Núna er pizzudeigið tilb. og ég er að spá í að fara að skera niður það sem á að
fara ofan á hana.

Fííííííííííín helgi...
(...set myndir inn á morgun...)

1 comment:

Anonymous said...

Hellú kjútí pæ!! Takk fyrir síðast, það var mega gama á sviðó, geggjaður diskótekari, Það duttu af mér dauðar lýs þegar ég sá þig birtast á REX KLUKKAN 03:00 AÐ NÓTTU!!! Og kom sjálfri mér á óvart og var til 04:30. Heyrumst
GElísabet